Staff
There is yet no translation on this article availible Ásdís Sigurðardóttir, íþrótta-, stafgöngu- og rópjógakennari Íþróttakennari frá íþróttaskólanum á Laugarvatni, annar tveggja aðalaþjálfara ÍSÍ í stafgöngu og kennari í rópjóga. Hefur áralanga starfsreynslu af einkaþjálfun fyrir alla aldurshópa jafnt og af almennri íþróttakennslu. |
|
Last Updated ( Saturday, 08 March 2008 )
|
There is yet no translation on this article availible Auður Bjarnadóttir, jógakennari Auður hefur stundað jóga og þeirri miklu list að lifa lífinu síðan 1992. Hún bjó í Bandaríkjunum frá 1998-2000 og kynnti sér ýmsar greinar jógans nánar.1999 tók hún kennarapróf í Mount Madonna í Kaliforníu og lærði síðan meðgöngujóga í Seattle árið 2000 og síðan á Kripalu Center 2002. Auður tók kennarapróf í Kundalini jóga í New Mexico að forskrift Yogi Bhajan í sept. 2005 og hefur kennt það síðan. Auður kenndi jóga í Kramhúsinu frá árinu 2000, en opnaði LÓTUS-Jógasetur í mars 2002 ásamt Ástu Arnardóttur. Auður kennir jóga fyrir barnshafandi konur, mömmujóga og Kundalini jóga. Veturinn 2000-2001 sá Auður um Krakkajóga í Stundinni Okkar. Auður hefur dansað frá því hún man eftir sér. Frá árinu 1973 starfaði hún sem dansari og ballettkennari á Íslandi, í Þýskalandi, Sviss, Svíþjóð og í Bandaríkjunum. Hún er einnig starfandi danshöfundur og leikstjóri. Auður stundar áframhaldandi nám í 5 Rhythmadansi í Bretlandi enda lítur hún á sig sem eilífan nemanda í jóga, dansi skapandi. www.lotusjogasetur.is |
|
Last Updated ( Saturday, 08 March 2008 )
|
|
There is yet no translation on this article availible Dagmar Eiríksdóttir, nálastungur,Li.Ac. Dagmar nam nálastungur í Bretlandi við The International College of Oriental Medicine,1991-1995. Sérhæfði sig í nálastungumeðferð á börnum,1995-1996,við London School of Acupuncture. Hún er einn af stofnendum Nálastungufélags Íslands og situr þar í stjórn. |
|
Last Updated ( Saturday, 08 March 2008 )
|
|
There is yet no translation on this article availible
Esther Helga Guðmundsdóttir B.M.. Meðferðarráðgjafi. Esther Helga nam söng- og tónlistarfræði við Háskólann í Indiana, Bandaríkjunum og lauk þaðan B.M. prófi árið 1989. Hún kom síðan heim og stofnaði Söngskólann Söngsmiðjuna og síðar Söngsetur Estherar Helgu. Hún starfaði við stjórnun og kennslu í 15 ár. 8. febrúar 2003 fann hún lausn við vanda sem hún hafði glímt við frá barnæsku, sem er matarfíkn og átröskun. Síðan þá hefur hún unnið að því að ná bata sjálf og síðar undirbúa stofnun meðferðar og fræðslumiðstöðvar fyrir þá sem eiga við matarfíkn og aðrar átraskanir að stríða. Haustið 2005 fór hún á Brautargengisnámskeið Impru með mfm miðstöðina sem viðskiptahugmynd og hlaut hvatningarverðlaun fyrir hana. Vorið 2006 lauk hún námi við Ráðgjafaskóla Íslands. Haustið 2006 sótti hún námskeið hjá ACORN food dependency recovery services, í Sarasota, Bandaríkjunum. mfm miðstöðin og ACORN ákváðu að hefja samstarf, þar sem mfm miðstöðinni er heimilað að nota allt það efni og þekkingu sem ACORN hefur byggt áratugalangt, farsælt starf sitt á. Þá mun Esther Helga taka þátt í þriggja ára þjálfunar prógrammi fyrir fagaðila sem starfa að meðferðarmálum fyrir matarfíkn og aðrar átraskanir. Esther Helgu var boðið að taka sæti í ráðgefandi nefnd sem vinnur að undirbúningi og stofnun Alþjóðlegra samtaka sem heita Food Addiction Institute. Samtökin eiga að vera ráðgefandi og standa fyrir fræðslu fyrir þá fagaðila sem starfa á vettvangi meðferðarmála fyrir matarfíkn og aðrar átraskanir. Tel: +354 5683868 Fax: +354 5172124 www.matarfikn.is
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
|
|
Last Updated ( Saturday, 08 March 2008 )
|
|
There is yet no translation on this article availible Guðný Helgadóttir, leikari og taiji kennari Enska, þýska, skandinaviska Taiji er aldagamalt kínverskt hreyfikerfi þar sem áherslan er lögð á rétta líkamsbeitingu, samhæfingu, orkuflæði, einbeitingu og jafnvægi hugar og líkama. Taiji hentar fólki á öllum aldri þar sem allar hreyfingar eru mjúkar og flæðandi en um leið styrkjandi fyrir stoðkerfi líkamans. Guðný hefur kennt Taiji sl. 11 ár m.a. í Kramhúsinu og einnig eldri borgurum í félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar. Hún nýtur stöðugrar leiðsagnar meistara síns Kinthissa sem hún kemur til Íslands 2var á ári. Guðný sækir einnig tíma erlendis hjá Master Chen Xiowang sem er margfaldur verðlaunahafi í Kína og á alþjóða vettvangi. |
|
Last Updated ( Saturday, 08 March 2008 )
|
|
There is yet no translation on this article availible Lithimnugreining & olíur, nudd, svæðanudd, lifandi fæði. Nam lithimnugreiningu frá School of Natural Medicine árið 2000. Hvítugreiningu frá Grand Medicine 2005 – 2006. Vann við Hydrocolontherapy (ristilskol) hjá Matthildi Þorláksdóttur og er hreinsun eitt af áhugamálum hennar. Starfaði áður í 20 ár sem leikskólakennari með sérmenntun í listgreinum og sérhæfingu í náttúrulegum uppeldisaðferðum waldorf-leikskólans. Hefur kennt brúðugerð og er liðtæk í handavinnu ýmiskonar Lilja rekur litla stofu heima í sólstofunni - Lithimnustofuna sem býður m.a. uppá augngreiningu eftir ljósmyndum (oftast klukkustunda viðtal með myndatöku og greiningu) nudd, Divinty Touch fótanudd (reflexology) og svo Regndropameðferð á bak með hágæða lífrænum kjarnaolíum. Heldur reglulega lítil námskeið þar sem hún kennir einfalt lifandi fæði, mest ýmsa fljótlega næringarríka drykki. Lilja segir: „Ég lít á mig sem leiðbeinanda í heilsugæslu og það er mitt stærsta hlutverk að kenna fólki að taka ábyrgð á heilsu sinni með slagorðinu: horfumst í augu við okkur sjálf! Ég er alin upp í sveit og hef því einhverjar sterkar sveitarætu er m.a. forfallinn aðdáandi móður náttúru – og ber mikla umhyggju fyrir jörðinni, því vel ég lífrænt eins og kostur er á.“ Lilja er formaður Félags lithimnufræðinga. |
|
There is yet no translation on this article availible
Háls-, nef-, og eyrnalæknir, nálastungu, akupunktur og fl. Læknir og sérfræðingur í háls-, nef-, og eyrnalækningum frá Voroshilovgrad Medical Institute1990. Hefur unnið mikið á heilsustofnunum í Rússlandi þar sem hún hefur sérhæft sig í meðhöndlun barna. Próf frá Krím Medical Institute. Natalia hefur próf í akurpúnktur m.a.frá Su Jok sem er kóreanskur skóli og frá Medical Academy Of Post-Graduate Education í Saint Petersburg. Hún hefur einnig sérhæft sig í „afeitrun“ á tóbaki, áfengi og matarfíkn hjá Dr. Pavlov. Natalia er félagi í NADA Europe, National Acupuncture Detoxication Association. Natalia hefur náð umtalsverðum árangri í með parkinsonssjúklinga og nafn hennar er þekkt víða um Evrópu fyrir þær sakir.
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
www.heilsubankinn.is/liljaoddsdottir |
|
There is yet no translation on this article availible Nam höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð, (CranioSacral ) hjá Upledger stofnuninni á Íslandi, í Skotlandi og á Bahamas. Sigrún hefur svokallað Advance diplóma sem er djúp tilfinningalosun með samtalsmeðferð. Hún hefur tekið námskeið fyrir ungabörn, ófrískar konur, orkunámskeið, meðferð í vatni, meðferð fyrir hesta og unnið með höfrungum á Bahamas. Sigrún er líka svæðanuddari og með 2 stig í Reiki. Kennir orkubeitingu og er á þriðja ári í náimi í hómópatíu. Sigrún hefur setið nokkur námskeið um vítamín-, steinefna-,næringar-, og jurtafræði. Hún hefur tekið börn í höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð, aðallega vegna kvíða, ofvirkni og athyglisbrests, en einnig vegna bit vandamála (skakkar tennur, spangir) og svefnörðugleika. http://www.craniosacral.is http://www.upledger.is |
|
There is yet no translation on this article availible
Sólveigu eða Sollu grænu þarf vart að kynna fyrir Íslendingum. Sólveig rekur fyrirtækið Himnesk hollusta sem sérhæfir sig í innflutningi á hágæða matvöru og fæðubótaefnum frá viðurkendum fyrirtækjum. Matvörurnar eiga það sammerkt að vera lífrænt ræktaðar, vistvænar, rekjanlegar og án allra auk- og eiturefna. Miklar kröfur eru gerðar til matvörunnar sem seld er undir merkjum fyrirtækisins. Markmiðið er að selja gæðavöru á góðu verði, þannig að allir geti notið Himneskrar hollustu. www.himneskt.is |
|
There is yet no translation on this article availible
Heilun/reiki, spámiðill, hjúkrunarfræðingur
Sússí er vel þekkt sem spámiðill og heilari. Heilun dregur nafn sitt af því að heilarinn hægir á heilabylgjum sínum fyrst niður í alfa (alpha) tíðni, síðan niður í þeta (theta) tíðni. Með þeta tíðni er m.a. unnt að hjálpa fólki við að finna út hvað hamlar því í daglegu lífi, bæði í samskiptum við aðra og varðandi eigin líðan. |
|
There is yet no translation on this article availible
Kokkur og næringarkönnuður.
Hann hóf sinn "feril" með alvarlegum veikindum sem hann sigraðist á með því að breyta um mataræði og leita sér óhefðbundinna næringar- og læknisráðgjafar. Þorbjörg og Umahro eru par á meira en einn máta. Hér á landi eru þau þekkt fyrir 10 grunnreglur™ sem fyrirmynd að hollu mataræði. Þau halda fræðslu- og matreiðslunámskeið með pólinn í þeim. Þau voru með heilsuþátt á Skánum Heil og sæl veturinn 2005 sem þyrlaði upp í m.a. sykurumræðunni. Sjá: http/ www.10grunnreglur.com |
|
There is yet no translation on this article availible
Spádómar, miðlun, heilun, LNP Ylfa er löngu þekkt á meðal þeirra sem leita til spákvenna og miðla og stóran hóp fastra viðskiptavina. |
|
Last Updated ( Saturday, 15 March 2008 )
|
|
There is yet no translation on this article availible
UM TRANSHEILUN Hvað er transheilun ? Nútíma þjóðfélag býður uppá mikinn hraða þar sem andleg og líkamleg líðan situr á hakanum þar til brestir koma í annað hvort eða bæði kerfin og er viðkomandi einstaklingur þá illa staddur og það jafnvel án þess að gera sér nokkra grein fyrir því fyrr en of seint. Líkamlegir kvillar geta verið í formi vöðvaverkja víða í stoðkerfinu sem líkja mætti við tannpínu í sumum tilfellum en andlegir geta verið allt frá kvíða, óróleika, óöryggi, svefntruflunum til þess að þunglyndi læðist aftan að viðkomandi. Heilun er í eðli sínu tenging milli tveggja heima þar sem heilarinn tengir sig við hjálparaðila sína og miðlar heilunarorkunni til sjúklings og notar því aðeins lítið brot af sinni eigin orku til þessarar miðlunar. Orkuflutningur með þessari tengingu er sérsniðinn af hjálparaðilum fyrir þennan tiltekna sjúkling. Ekki er um að ræða að heilarinn stjórni orkuflæðinu eða styrkleika þess á nokkurn hátt enda aðeins leiðari. Ef meðferðaraðili hefur ekki góðar tengingar miðlar hann aðeins sinni eigin orku til sjúklings og situr uppi orkulaus á eftir og getur tekið hann langan tíma að vinna hana upp aftur. Miðlun / heilun er ekki eitthvað sem sent er til aðila af himnum ofan heldur er þetta meðfæddur eiginleiki grópaður í sálina þar sem hjálpendur að handan koma til aðstoðar við að opna fyrir og aðstoða við þróun eiginleikans sem getur tekið ár og áratugi að þróa svo vel sé. Oft er það þannig að þegar sjúklingur liggur á bekknum hjá mér (alklæddur) þá koma einhverjir nánir látnir ættingjar með honum til mín og í sumum tilfellum vísað honum leiðina og þá jafnframt vakið athygli mína á brýnni aðstoðarþörf einhvers annars nákomins ættingja og hefur þetta alltaf reynst rétt. Þessar upplýsingar og önnur góð ráð frá þeim læt ég vita um eftir meðferð þar sem slík skilaboð koma á lægri tíðni til mín en ég vinn á og bíð með úrvinnslu þar til eftir meðferð þar sem það dregur úr orkuflæðinu að skoða málið strax. Ég hef engin afskipti af yfirstandandi lækningum / lyfjagjöf viðkomandi enda ekki á mínu færi að gera slíkt, né ráðlegg ég fólki um lyfjagjöf. Með von um að sjá sem flesta sem þurfa aðstoð. Þór Gunnlaugsson. Tengill milli tveggja heima. |
|
Last Updated ( Saturday, 15 March 2008 )
|
|
There is yet no translation on this article availible
Hjúkrunarfræðingur og næringaþerapisti D.E,T Vinnur sem einstaklingsráðgjafi í Danmörku og á Íslandi og sem kennari við Hover Sundhedshøjskole i Danmmörku. Ráðgjöf hennar er miðuð við margvísleg heilsusamleg og næringartengd vandamál og hnitmiðuð við hvern og einn. |
|
|
|
|
|