header
 
Um okkur Rafpóstur

Í meira en þrjátíu ár höfum við, Hörður og Salome,  Folkrekið ferðaþjónustu í Efri-Vík. Auk ánægjunnar við að þjóna gestum okkar, hefur hvert ár fært okkur aukna reynslu og þekkingu til að byggja á.
Við byrjuðum smátt með gistingu í íbúðarhúsinu en höfum smám saman aukið gistirými og afþreyingu og opnum nú glæsilegt hótel fyrir gesti okkar, til viðbótar við smáhýsin.
Fyrir nokkrum árum komu Eva Björk og Þorsteinn  Folk til liðs við okkur með aukin kraft og þekkingu.

Auk þekkingar sem við höfum aflað okkur af langri reynslu höfum við öll sótt ótal námskeið á vegum Ferðaþjónustu bænda og Háskóla Íslands. Við höfum tekið þátt í Green Globe 21. og  m.a. setið í stjórn Ferðaskrifstofu bænda hf.

Hefðbundinn búskap erum við hætt með, en aðgang að undrum sveitarinnar höfum við engu að síður fyrir þá gesti sem vilja kynnast þeim. Sjá nánar undir „hótelið, viðburðir og heilsulindin“.

Við erum:
Hörður Davíðsson ferðaþjónustubóndi,  útskrifaður  frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1965
Salome Ragnarsdóttir ferðaþjónustubóndi, útskrifuð frá Húsmæðraskólanum á Laugum 1965
Eva Björk Harðardóttir ferðaþjónustubóndi og kennari, útskrifuð frá Kennaraháskóla Íslands1992
Þorsteinn M Kristinsson ferðaþjónustubóndi, kennari og lögreglumaður, útskrifaður frá Kennaraháskóla Íslands 1992

Síđast uppfćrt ( Friday, 11 July 2008 )
 
Larger FontSmaller Font