header
 
Auður Bjarnadóttir E-mail
There is yet no translation on this article availible
Auður Bjarnadóttir, jógakennari
Auður hefur stundað jóga og þeirri miklu list að lifa lífinu síðan
1992. Hún bjó í Bandaríkjunum frá 1998-2000 og kynnti sér ýmsar
greinar jógans nánar.1999 tók hún kennarapróf í Mount Madonna í
Kaliforníu og lærði síðan meðgöngujóga í Seattle árið 2000 og síðan
á Kripalu Center 2002. Auður tók kennarapróf í Kundalini jóga í New
Mexico að forskrift Yogi Bhajan í sept. 2005 og hefur kennt það
síðan. Auður kenndi jóga í Kramhúsinu frá árinu 2000, en opnaði
LÓTUS-Jógasetur í mars 2002 ásamt Ástu Arnardóttur. Auður kennir
jóga fyrir barnshafandi konur, mömmujóga og Kundalini jóga.
Veturinn 2000-2001 sá Auður um Krakkajóga í Stundinni Okkar.
Auður hefur dansað frá því hún man eftir sér. Frá árinu 1973
starfaði hún sem dansari og ballettkennari á Íslandi, í Þýskalandi,
Sviss, Svíþjóð og í Bandaríkjunum. Hún er einnig starfandi
danshöfundur og leikstjóri. Auður stundar áframhaldandi nám í 5
Rhythmadansi í Bretlandi enda lítur hún á sig sem eilífan nemanda í
jóga, dansi skapandi.
www.lotusjogasetur.is
Last Updated ( Saturday, 08 March 2008 )
 
Larger FontSmaller Font