header
 
Auður Bjarnadóttir Rafpóstur

Jógakennari

Auður hefur stundað jóga og þá miklu list að lifa lífinu síðan 1992. Hún bjó í Bandaríkjunum frá 1998-2000 og kynnti sér ýmsar greinar jóga nánar. 1999 tók hún kennarapróf í Mount Madonna í Kaliforníu og lærði síðan meðgöngujóga í Seattle árið 2000 og síðan í Kripalu Center 2002. Auður tók kennarapróf í Kundalini jóga í New Mexico að forskrift Yogi Bhajan í sept. 2005 og hefur kennt það síðan. Auður kenndi jóga í Kramhúsinu frá árinu 2000, en opnaði LÓTUS-Jógasetur í mars 2002 ásamt Ástu Arnardóttur. Auður kennir jóga fyrir barnshafandi konur, mömmujóga og Kundalini jóga. Veturinn 2000-2001 sá Auður um Krakkajóga í Stundinni Okkar. Auður hefur dansað frá því hún man eftir sér. Frá árinu 1973 starfaði hún sem dansari og ballettkennari á Íslandi, í Þýskalandi, Sviss, Svíþjóð og í Bandaríkjunum. Hún er einnig starfandi danshöfundur og leikstjóri. Auður stundar framhaldsnám í 5 Rhythmadansi í Bretlandi enda lítur hún á sig sem eilífan nemanda í jóga og skapandi dansi.

www.lotusjogasetur.is

Síðast uppfært ( Saturday, 08 March 2008 )
 
Larger FontSmaller Font