header
 
Esther Helga Guðmundsdóttir E-post
There is yet no translation on this article availible
Esther Helga Guðmundsdóttir B.M.. Meðferðarráðgjafi.
Esther Helga nam söng- og tónlistarfræði við Háskólann í Indiana, Bandaríkjunum og
lauk þaðan B.M. prófi árið 1989. Hún kom síðan heim og stofnaði Söngskólann
Söngsmiðjuna og síðar Söngsetur Estherar Helgu.
Hún starfaði við stjórnun og kennslu í 15 ár.
8. febrúar 2003 fann hún lausn við vanda sem hún hafði glímt við frá barnæsku, sem
er matarfíkn og átröskun.
Síðan þá hefur hún unnið að því að ná bata sjálf og síðar undirbúa stofnun meðferðar
og fræðslumiðstöðvar fyrir þá sem eiga við matarfíkn og aðrar átraskanir að stríða.
Haustið 2005 fór hún á Brautargengisnámskeið Impru með mfm miðstöðina sem
viðskiptahugmynd og hlaut hvatningarverðlaun fyrir hana.
Vorið 2006 lauk hún námi við Ráðgjafaskóla Íslands.
Haustið 2006 sótti hún námskeið hjá ACORN food dependency recovery services, í
Sarasota, Bandaríkjunum.
mfm miðstöðin og ACORN ákváðu að hefja samstarf, þar sem mfm
miðstöðinni er heimilað að nota allt það efni og þekkingu sem ACORN hefur
byggt áratugalangt, farsælt starf sitt á.
Þá mun Esther Helga taka þátt í þriggja ára þjálfunar prógrammi fyrir fagaðila sem
starfa að meðferðarmálum fyrir matarfíkn og aðrar átraskanir.
Esther Helgu var boðið að taka sæti í ráðgefandi nefnd sem vinnur að undirbúningi og
stofnun Alþjóðlegra samtaka sem heita Food Addiction Institute. Samtökin eiga að
vera ráðgefandi og standa fyrir fræðslu fyrir þá fagaðila sem starfa á vettvangi
meðferðarmála fyrir matarfíkn og aðrar átraskanir.
Tel: +354 5683868 Fax: +354 5172124
www.matarfikn.is Den här e-postadressen är skyddad från spam bots, du måste ha Javascript aktiverat för att visa den
Senast uppdaterad ( 2008-03-08 )
 
Larger FontSmaller Font