header
 
Kirkjubæjarklaustri Rafpóstur

Á Kirkjubæjarklaustri er margvísleg þjónusta í boði, svo sem banki, sundlaug, verslun, pósthús, bifreiðaverkstæði, hárgreiðslustofa, læknir, kaffihús og margt fleira.
 
Frá okkur er örstutt að mörgum þekktustu náttúruperlum landsins eins og þjóðgarðinum í Skaftafelli, Jökulsárlóni, Ingólfshöfða og Laka.
En við túnfótinn eru einnig margar náttúruperlur sem eru ekki síður merkilegar. Má þar nefna Landbrotshólana, sem mynduðust fyrir sjö þúsund árum, Tröllshyl, sem er forn farvegur Skaftár, og Fjarðárgljúfur, sem liggur við slóðina inn að Laka.

Álfabyggðunum sem eru við bæjardyrnar má heldur ekki gleyma en þar hafa glöggir menn séð margar huliðsvættir.

Síðast uppfært ( Friday, 05 June 2009 )
 
Larger FontSmaller Font