| Lilja Oddsdóttir |
|
|
There is yet no translation on this article availible Lithimnugreining & olíur, nudd, svæðanudd, lifandi fæði. Nam lithimnugreiningu frá School of Natural Medicine árið 2000. Hvítugreiningu frá Grand Medicine 2005 – 2006. Vann við Hydrocolontherapy (ristilskol) hjá Matthildi Þorláksdóttur og er hreinsun eitt af áhugamálum hennar. Starfaði áður í 20 ár sem leikskólakennari með sérmenntun í listgreinum og sérhæfingu í náttúrulegum uppeldisaðferðum waldorf-leikskólans. Hefur kennt brúðugerð og er liðtæk í handavinnu ýmiskonar Lilja rekur litla stofu heima í sólstofunni - Lithimnustofuna sem býður m.a. uppá augngreiningu eftir ljósmyndum (oftast klukkustunda viðtal með myndatöku og greiningu) nudd, Divinty Touch fótanudd (reflexology) og svo Regndropameðferð á bak með hágæða lífrænum kjarnaolíum. Heldur reglulega lítil námskeið þar sem hún kennir einfalt lifandi fæði, mest ýmsa fljótlega næringarríka drykki. Lilja segir: „Ég lít á mig sem leiðbeinanda í heilsugæslu og það er mitt stærsta hlutverk að kenna fólki að taka ábyrgð á heilsu sinni með slagorðinu: horfumst í augu við okkur sjálf! Ég er alin upp í sveit og hef því einhverjar sterkar sveitarætu er m.a. forfallinn aðdáandi móður náttúru – og ber mikla umhyggju fyrir jörðinni, því vel ég lífrænt eins og kostur er á.“ Lilja er formaður Félags lithimnufræðinga. |
















•