Kirkjubæjarklaustri Á Kirkjubæjarklaustri er margvísleg þjónusta í boði, svo sem banki, sundlaug, verslun, pósthús, bifreiðaverkstæði, hárgreiðslustofa, læknir, kaffihús og margt fleira.
Svæðið
Frá okkur er örstutt að mörgum þekktustu náttúruperlum landsins eins og þjóðgarðinum í Skaftafelli, Jökulsárlóni, Ingólfshöfða og Laka.
En við túnfótinn eru einnig margar náttúruperlur sem eru ekki síður merkilegar. Má þar nefna Landbrotshólana, sem mynduðust fyrir sjö þúsund árum, Tröllshyl, sem er forn farvegur Skaftár, og Fjarðárgljúfur, sem liggur við slóðina inn að Laka.
Álfabyggðunum sem eru við bæjardyrnar má heldur ekki gleyma en þar hafa glöggir menn séð margar huliðsvættir.
Hótel Laki/Efri-Vík stendur á grasigrónu hrauni sem er fimm til átta þúsund ára gamalt, 5 km frá þorpinu Kirkjubæjarklaustri.
Menjar benda til þess að búið hafi verið í Efri-Vík frá landnámi. Má þar nefna Bjarnargarð sem sérfróðir menn telja hlaðinn á milli elleftu og tólftu öld. Hann var trúlega ætlaður til varnar búsmala. Einnig má á nokkrum stöðum sjá móta fyrir fornum bæjarrústum. Rannsóknir á svæðinu sýna að goslag frá Öræfajökli árið 1362 er að finna 60 cm undir yfirborði jarðar og enn neðar má sjá ösku frá Kötlugosinu árið 1240.
Í skjóli jökla fara veðurguðirnir mildum höndum um gesti og gangandi og bjóða alla velkomna allan ársins hring – rétt eins og húsráðendur.