|
Fastir viðburðir í lífi okkar Skaftfellinga eru:
Þorrablót Það er gamall íslenskur siður að blóta þorra. Það hafa Íslendingar gert síðan í heiðni og gera enn. Forn matarmenning er dregin fram í dagsljósið og horfið er í huganum aftur í aldir þegar ísskápar og skyndibitar voru ekki til. Hægt er að panta þorramat fyrir hópa og hlaðan hæfir vel þorrastemningunni. Páskar Sigur lífsins er lofgjörð til lífsins og til minningar um eldklerkinn Jón Steingrímsson sem sagður er hafa stöðvað Skaftárelda með bænum sínum árið 1784. Sauðburður Frá síðari hluta apríl og fram i maímánuð er sauðburður hjá fjárbændum sveitarinnar. Hægt er að kíkja í fjárhús og fylgjast með sauðburði og amstri bóndans á þessum annatíma sveitamannsins. Í fjós er hægt að líta allan ársins hring. Verslunarmannahelgi Verslunarmannahelgin er fjölskylduvæn og hentar þeim sem vilja njóta kyrrðar sveitarinnar. Markaðstjald er reist á Kirkjubæjarklaustri og dansleikir á kvöldin. Kammertónleikar Aðra helgi ágústmánaðar eru kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri. Þar koma fram bæði erlendir gestir og landsins fremstu tónlistarmenn. Hátíðin hefur fyrir löngu skipað sér sess sem einn af merkari viðburðum í tónlistarlífi landsmanna. Réttir í Dalbæjarrétt Þegar húma tekur og sól lækkar á lofti sækja bændur í Skaftárhreppi fé á fjall. Í byrjun september er réttað í Dalbæjarrétt þar sem ungir og aldnir koma saman og fagna því að heimta fé af fjalli. Jól og áramót Jól höldum við að íslenskum sveitasið. Messað er í kirkunni og jólatrésskemmtun haldin fyrir börnin. Í Efri-Vík kveðjum við árið og fögnum því nýja með flugeldum, áramótabrennu og söng.
|