Ísland – land elds og ísa.
Jökulinn ber við himinn þegar þú horfir út um gluggann á Hótel Laka og svart hraunið teiknar kynjaverur á milli jökulrandar og grænna túna. Til suðurs teygja sig svartir sandar sem fallast í faðma við bláar öldur Atlantshafsins. Dulúð við hvern krók og kima og saga við hvert fótmál.
Þegar þú ekur frá Reykjavík að Hótel Laka/Efri-Vík keyrirðu yfir hraun frá einu mannskæðasta eldgosi Íslandssögunnar, hraun frá mesta hraunflóði sem runnið hefur í einu gosi á Jörðinni. Það gos var í Lakagígum árið 1783 – einnig þekkt sem Skaftáreldar.
Skaftáreldar og Móðuharðindin sem þeim fylgdu (1783-4), eru mestu náttúruhamfarir sem íslenska þjóðin hefur orðið fyrir og heimildir segja, að 10.000 manns eða 20% þjóðarinnar hafi látið lífið og stór hluti bústofns landsmanna drepist.
En það var ekki bara á Íslandi sem áhrifa gossins varð vart. Askan dreifðist um mikinn hluta landsins og öskuryk barst til Bandaríkjanna, meginlands Evrópu og mistur sást í lofti austur til Altaifjalla í Kína. Á eldfjallaeynni Íslandi eru eldfjöllin enn virk og gjósa með óreglulegu millibili en tækni nútímans gerir okkur kleift að fylgjast vel með umbrotum jarðar og því koma eldgos okkur sjaldan í opna skjöldu.
Þið getið því óttalaus heimsótt okkur í Efri-Vík og snúið heim full af fróðleik um undur jarðar.
|
|
Síðast uppfært ( Friday, 07 March 2008 )
|